Hæ hæ öllsömul
Á laugardaginn n.k. verður haldin árshátíð MH-ingana. Mætingarstaður er MH!!! Tímasetningin er kl 15:00 og verður dagskrá fram á kvöld.
Nauðsynlegt er að mæta með eftirfarandi:
ca. 1000-2000 kr.
fatnað sem hæfir veðri
sundfatnað + pening í sund
fínni föt (eða föt til skiptana) og snyrtidót
áfengi fyrir þá sem vilja.
Við munum njóta kvöldverðar í heimahúsi, og því mega þeir sem hafa áhuga á hvítvíni og/eða rauðvíni með matnum láta Rakel vita í síma: 694 6907 fyrir fimmtudagskvöld
Þeir sem ætla að taka þátt mega síðan staðfesta komu sína sem fyrst til Fjólu, í síðasta lagi á fimmtudagskvöldið, annaðhvort í síma 8693978 eða í gegnum e-mailið
fjola@isl.isAð lokum biðjum við alla sem ætla að koma og taka þátt að senda á Fjólu ykkar persónulegu svör við eftirfarandi spurningum. ATH. það má bara velja 1 nafn/svar við hverja spurningu og ekki segja neinum svörin ykkar. Ekki ofhugsa svörin, bara það fyrsta sem dúkkar upp í hugan.
Þá koma spurningarnar:
1. Eftirminnilegasta atvikið á MH-tíma þínum
2. Uppáhalds kennarinn
3. Leiðinlegasti kennarinn
4. Hver var MH-ástin þín?
5. Aðal djammarinn í vinahópnum.
6. Hver var "skemmtilegastur" í hópnum?
7. Hver var tapsárasti í hópnum?
8. Hver skar sig úr sem gleraugnaglámur hópsins?
9. Hver var skemmtikraftur hópsins?
10. Hver var "nörd" hópsins?
11. Hver var "opnasta" manneskja hópsins?
12. Hver var "fyndnasta" manneskja hópsins?
13. Hver var "einlægasta" manneskja hópsins?
14. Hver var gella/gæji hópsins?
15. Hver var traustasti vinur hópsins?
16. Hver var með flottustu hárgreiðslu hópsins?
Spurningarnar og svörin verða síðan...hugsanlega notaðar á laugardeginum í dagskránni...þannig að þau skipta máli. Munið að senda!!!!
p.s. makar eru velkomnir...en þurfa að "sæta" sömu dagskrá og aðrir ;) makar eru þó undanþegnir þátttöku í ofangreindum spurningum.
Hlökkum til að sjá ykkur
-Nefndin 2008 (Rakel, Fjóla og Davíð)